Ofur-Hjalti - Verðandi Alheimsforseti
Gamla snilldarbloggið
01.08.2008 11:07:02 / hgret

KRAFTAVERKIÐ MITT

Dóttir mín hún Sóley Kristín er eins árs í dag.
Innilega til hamingju með afmælið gullmolinn minn.

Pabbi...

 

Nýja fjölskyldubloggið er: www.hogmogskhihollandi.blog.is

Ég get auðvitað ekki á mér setið og mun rífa kjaft á:
http://alheimsvaldur.blog.is

Og þar með líkur þessari bloggsíðu....

Og þar með líkur þessari bloggsíðu....


» 2 hafa sagt sína skoðun

31.07.2008 11:43:27 / hgret

Almost there

Hverjum hefði dottið það í hug að manni sem hvergi vill búa á Íslandi nema í austurbæ Kópavogs væri á faraldsfæti og hyggði á búsetu í svefnbæ í Hollandi.
Þannig er þó í pottinn búið, enn er ég að reyna að selja þvottavélina mína og er hún nú á útsöluprís, eða 30 þús krónur.
Blái bíllinn minn fór í pressuna í morgun því að væntanlegur kaupandi gat ekki pungað út þeim miklu fjárhæðum er til þurfti til að eignast kerruna.
Brottför héðan af klakanum er á sunnudaginn komandi kl 7:55 og hef ég nú fengið one way ticket til Amsterdam sem er pínulítið skrítið, þar sem alltaf hefur verið miði heim líka, en ekki núna og mér finnst það ljómandi fínt.

A morgun kemur hér mega tilkynning...

» 1 hafa sagt sína skoðun

25.07.2008 18:51:55 / hgret

Sölumaður ársins ?

Mikið grín og gaman var hent að mér þegar ég festi kaup á 21 árs gömlum Daihatsu Cuore, einn af 5 á landinu, en ég get frætt ykkur um það að ég seldi bílinn í gær, og NEI; ég þurfti ekki að borga með, fæ bara brakandi nýja seðla í skiptum fyrir kaggann.

Ég er því orðinn algerlega bíllaus og sníki bíla hjá mömmu og pabba sem og tengdó, feels like 17 - eða þannig sko...
Ekki nóg með það, ég er að flytja inná tengdó þar til ég er út því að hér í G5 er allt í kassadrasli og plastveseni.

Rýmingarsalan heldur áfram því að:
 NÚ ER TIL SÖLU 3 ÁRA ARISTON 1400 RPM ÞVOTTAVÉL Á SLIKK
Vélin kostar 70 kall ný en þú færð hana á 40.
Hún bilar aldrei, þvær eins og vindurinn og er ALLTAF hress.


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.07.2008 10:50:59 / hgret

Bíllinn farinn

Buinn að selja FOcusinn líka, bara sá blái eftir.

Sóley segir:b f nbkjl cvgfvhjkbh


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.07.2008 13:27:11 / hgret

Fordinn til sölu...

Íbúðin er komin í leigu frá og með 1.ágúst næstkomandi.
Þá er bara að selja bílinn.

http://fordfocus2002.blogspot.com

Újéééééé


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.07.2008 16:21:23 / hgret

Panic Tan in Uzbe..

Þá fer starfsemi þessarar bloggsíðu senn að ljúka.
Ég er þessa dagana staddur í Frankfurth eftir mikla ævintýraferð til Amsterdam þar sem ég hjálpaði Frottesen að flytja í nýja húsið sitt.
Á morgun fer ég til Tashkent í 2-3 daga og er planið að maka á sig sólarvörn og steikjast í 35-40 stiga hita í þennan tíma, eftir sólsetur verður eflaust þrumað á Jumanji og etið.

Kem heim 17 júlí frá Amsterdam, síðasta rotation í þónokkurn tíma, er þó hvorki búinn að selja né leigja kofann - hvað er málið ?

P.S. Engar yndir úr þessari rotation þar sem myndavélin varð eftir heima :O=(


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.06.2008 15:43:44 / hgret

Ekki fréttir................. fyrir suma !

Hér með tilkynnist:
Hans heilagleiki Hjalti Grétarsson mun flytjast til Hollands um þónokkurt skeið með sinni family frá og með ágúst næstkomandi. Ástæðan er slæm staða krónunnar, gjörspillt ríkisstjórn og bankagrín af verstu sort.

Samkomulag náðist á milli stríðandi fylkinga um Hollandsför, en hart var barist á löngum samningarfundum um viðverustað þar sem ljóst var að ekki var hægt að búa við þessa drulluköku er boðið er uppá hérna á klakanum um þessar mundir. Þeir staðir er til greina komu voru: Holland, Malasía og Ísland.
Ísland datt snemma út úr myndinni og var því tekist á um þessa tvo gjörólíku, en jafnframt spennandi kosti, en eins og áður segir varð Holland fyrir valinu vegna staðsetningar og nálægðar við fjölskyldu og vini.

Bækistöðvar flokksins eru hinar glæsilegustu, staðasettar í Nieuw Vennep sem er einungis í um 9 mín fjarlægð frá Schiphol flugvelli sé ferðast með lest, en 15-20 mínútur sé ferðast með strætó - leið 310.
Bækistöðvarnar eru sem áður segir hinar glæsilegustu, 180 fermetra slot á 3 hæðum. Baðherbergi á hverri hæð og mun 3ja hæðin vera einungis ætluð fyrir gesti.
Sæmilegasti suðurgarður er meðfylgjandi og þar verður hægt að borða coffeshop "special" brownies og te þegar sólin skín og Marley syngur í iPodinum

Vegna þessa þá mun vera til sölu eign í G5 og einnig er Focusinn okkar fallegi falur fyrir lítið, en hann er ekinn 80 þús og er 2002 módel (og auðvitað Dæjarinn minn líka falur fyrir nánast ekki neitt - he he).

Það verður gaman að sjá þig og þína í heimsókn hjá okkur í Hollandi, ný bloggsíða er í fæðingu og mun vera hægt að nálgast password í gegnum e-mail þegar goti er lokið.

C U L8ER




» 4 hafa sagt sína skoðun

21.06.2008 21:55:13 / hgret

Af litlum neista...

Það er óhætt að segja að það hafi vantað neistann í Hollendinga í leiknum í kvöld á móti Rússum, en það vantaði ekki neistann hjá mér þegar ég brenndi hollenska búninginn minn úti á svölum eftir leikinn.

Svekkelsið er algert...en nýjar myndir í albúmi 2008

» 0 hafa sagt sína skoðun

12.06.2008 10:09:12 / hgret

Hup Holland Hup

Ég stóð í appelsínugulu mannhafinu og iðaði í skinninu, beið eftir því óumflýjanlega. Vegna taktfastrar hreyfingar þvögunnar tróð ég hálfgerðan marvaða til að sjá það sem gekk á því að ýmist vaggaði mannhafið til hægri og vinstri eða hoppaði hæð sína af einskærri barnslegri gleði.
Ekki spilti fyrir fiðringurinn er var í höfðum flestra eftir neyslu hins gullna mjaðar er nú er orðinn er eitt helsta vorumerki þjóðarinnar og hefur verið um sinn.

Loksin var það orðin staðreynd, flautað var til leiksloka og heimamenn, Hollendingar báru sigurorð af Ítölum í sínum fyrsta leik á EM 2008. Mannhafið ærðist af fögnuði, það ringdi appelsínugulu papparuslinu og torgið breyttist í augabragði í alsherjar hátíð.
Leidseplein var staður sigurvegaranna, ekkert í heiminum gat breytt gleði "okkar" Hollendinga eftir sigur á heimsmeisturum Ítölum 3:0.

Þarna stóð ég sem dáleiddur í mínum Hollandsbúning, appelsínugulum bol og með appelsínugulu Hollandshúfuna mína og trallaði með sigurvegurunum eins og innfæddur. Þvílík dúndrandi stemming þetta mánudagskvöld í Amsterdam...

» 3 hafa sagt sína skoðun

07.06.2008 15:29:37 / hgret

Gleðilega hátíð

Já, loksins loksins loksins. EM byrjað og engir Englendingar með.
Því segjum við HUP HOLLAND HUP og drekkum Heineken í lítratali.
Annars er ég bara að bíða eftir heimferð sem verður 10 juni og stefni ég á sumarbústaðarferð með fjölskyldunni til að gera horft á tellí tvisvar á dag án nöldurs...

Jííhaa...

» 5 hafa sagt sína skoðun

03.06.2008 19:12:10 / hgret

Heima er best, hvar sem þar nú er...

Ný könnun hérna niðri til hægri...

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.05.2008 08:37:18 / hgret

Í dag....

... á ég afmæli og held upp á það með því að fá kjeééééllinguna hingað til Amsterdam.

» 5 hafa sagt sína skoðun

23.05.2008 13:11:45 / hgret

Uzbekistan

Það var ekkert annað að gera en að forða sér til Tashkent í Uzbekistan eftir að hafa prýtt forsíður dagblaðanna heima á Íslandi, slíkur var átroðningur aðdáenda og áhangenda sem safnast hafði saman fyrir utan flugvallarhótelið í Amsterdam.
Hér í Uzbe.. er fínt, sæmilegt hótel og nice veður eins og er, en frostmarkið fer víst oft og iðulega niður fyrir -30°C á veturna og ekki get ég sagt að mig hlakki mikið til þess að þvælast um í slíkum kulda.

Ferðin hingað gekk þó ekki áfallalaust fyrir sig, divert til Bergamo á Ítaliu en ferðinni var heitið eins og áður segir til Uzbekistan með millilendingu í Malpensa á Italiu.
Eftir frekar langa viðveru í Bergamo var hoppað yfir á Malpensa og gistum við þar eina dagstund áður en haldið var til "Langtíburtistan."

Hér er marg sem gleður augað, gamlar Lödur á hverju strái í ótrúlega góðu ástandi, stífbónaðar og nice. Er ekki frá því að Dæjarinn minn blikkni í samanburði, enda hálfgerð hrákasmíð miðað við Freðmírarkadelakkinn Löduna.
Fæ nú lítinn tíma til að sniglast um hér, fer á morgun til Frankfurth og áfram til Amsterdam þar sem framtíðin bíður....

» 4 hafa sagt sína skoðun

19.05.2008 07:15:15 / hgret

Forsíðufrétt

Hvað get ég sagt?
Það hefur nú verið mikið að gera hjá mér í þessu fríi, svo mikið í raun að ég hef lítið sem ekkert getað sinnt "skyldum" mínum í Flugklúbbi Alþýðunnar og það er ekki gott þar sem nóg er um að vera á þeim bænum því að kominn er nýr mótor á TF-BCX og TF-BCW er nú búin í ársskoðun.
Því brá þó þannig við í gær, laugardag, hafði ég tækifæri á að skrúfa nokkrar skrúfur og bolta á BCX í skýlinu okkar í Fluggörðum. Á minn mælikvarða telst það nú varla fréttnæmt á þeim umbrotatímum sem við lifum nú, en það er greinilegt að þjóðinni er annt um fréttir af því er verðandi Alheimsforseti teklur sér fyrir hendur.
Því til staðfestingar bendi ég á FORSÍÐU eins mest lesna dagblaðs á Íslandi í dag, Fréttablaðsins, mánudaginn 19. mai.

http://www.visir.is/ExternalData/pdf/fbl/080519.pdf

Annars er ég farinn til Amsterdam, frekari fréttir af því hér eða í öðrum fjölmiðlum ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.05.2008 14:21:02 / hgret

Þynnku prump

HÆ.
Ég held að versta prumpulyktin komi þegar aðeins hefur verið náð 1/2 áfanga í bjórþynnkudrullu. Hverst vegna? Jú, ég er að rannsaka þetta ákkúrat núna. Smá lortur efrtir í görn sem ertir þarmagas á útleið = Banvæn blanda.

En nóg um mig.
í gær var ég í innflutnings og afmælisveilsu. Margt var um mannin og fólk streymdi í hús úr öllum helstu bæjarfélögum landsins. Fáir þó svo heppnir að vera úr austurbæ Kópavogs eins og ég.
Ég hef til þessa verið ötull talsmaður okkar austurbæinga en er nú hættur því þrátt fyrir a búa í bæjarhlaðinu á Digranesi en í landi Kópavogs voru við upphaf 20. aldar að finna nokkur býli, Kópavogur og Digranes voru ríkisjarðir sem voru í útleigu til bænda, á Vatnsenda var líka búskapur og í Fífuhvammi.  

Saga Kópavogs sem bæjarfélags er ekki löng, ekki er öld síðan að í Kópavogi mátti aðeins finna örfá býli og nokkra sumarbústaði. Elstu merki um mannaferðir eru frá 9. öld við Kópavogsþing bærinn Kópavogur reis þar skammt frá. Fram að fyrri hluta 20. aldar var aðeins að finna nokkra bóndabæi í því landi sem nú tilheyrir Kópavogi, uppbygging Kópavogs hefst ekki fyrr en í kreppunni miklu upp úr 1930.

Ég er núna hættur að messa yfir vesturbæingum...


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10
Heimsóknir
Í dag:  5  Alls: 46858
Klukkan
Dagsetning
22. mars 2010
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 596 dögum
Forðaði ég mér af drulluklettinum Íslandi
Könnun
Hvar er best að búa?
Íslandi
15 atkvæði

Hollandi
2 atkvæði

Malasíu
8 atkvæði

Helvíti
7 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 32
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti